Andreas Schmidt er fæddur í Düsseldorf í Þýskalandi árið 1960, þar sem hann stundaði nám í píanóleik, orgelleik og hljómsveitarstjórn áður en hann sneri sér að söngnámi. Kennarar hans þar voru Ingeborg Reichelt í Düsseldorf og Dietrich Fischer-Dieskau í Berlín.
Eftir að hafa sigrað „Deutscher Musikwettbewerb“ árið 1983, hóf hann óperuferil sinn við Deutsche Opera í Berlín. Hlutverk hans við húsið, sem og í Staatsoper í sömu borg, hafa síðan verið fjöldamörg, en þar á meðal má nefna Guglielmo í Cosi fan tutte, Almaviva í Brúðkaupi Fígarós, Don Giovanni í samnefndri óperu, Wolfram í Tannhäuser, Valentin í Faust, Posa í Don Carlo, Amonasro í Aidu, Marcello í La Boheme, Beckmesser í Meistarasöngvrurunum, Amfortas í Parsifal, Faninal í Rósariddaranum, Gunther í Götterdämmerung, Kurwenal í Tristan og Ísold, svo dæmi séu nefnd. Hann hefur einnig tekið þátt í heimsfrumflutningi á verkum eftir Henze, Rihm og Ruzicka.
Andreas Schmidt hefur á undanförnum árum sungið við óperuhúsin í Hamborg, Dresden, München, Vín, Amsterdam og Genf, við Covent Garden-óperuna í London, Liceu-óperuna í Barcelona, Teatro Real í Madrid, Bastilluóperuna í París, Scala-óperuna í Mílanó og Metropolitan-óperuna í New York. Hann hefur komið fram á tónleikum við mörg af stærstu tónleikahúsum heims, þar sem hann hefur komið fram með flestum þekktustu sinfóníuhljómsveitum heims undir stjórn hljómsveitarstjóra á borð við Abbado, Ashkenazy, Barenboim, Bernstein, Bertini, Blomstedt, Bolton, Bychkov, Chailly, Conlon, C. Davis, Dohnanyi, Eschenbach, Frühbeck de Burgos, Gatti, Gardiner, Giulini, Haitink, Harnoncourt, Janowski, Jordan, Levine, Luisi, Marriner, Masur, Metzmacher, Muti, Nagano, Norrington, Ozawa, Rilling, Sawallisch, Schreier, Sinopoli, Solti, Stein, Tate, Thielemann, auk margra annarra.
Til viðbótar við störf sín sem óperusöngvari er hann þekktur ljóðasöngvari og hefur um margra ára skeið komið oftast fram ásamt píanóleikaranum Rudolf Jansen, en hefur einnig sungið með meðleikurum á borð við Vladimir Ashkenazy, Elenu Bashkirovu, Daniel Barenboim, Jörg Demus, Helmut Deutsch, Hartmut Höll, Burkhard Kehring, Geoffrey Parsons og Roger Vignoles.
Fjöldi upptaka fyrir útvarp og sjónvarp sýna breidd í verkefnum hans sem spanna allt frá Bach til Rihm, auk þess sem söngur hans hefur verið gefinn út á yfir 130 geisladiskum hjá DGG, BMG, Philips, Decca, Teldec, Sony, EMI, CPO, Hänssler og fleirum. Margir þeirra hafa hlotið innlend sem alþjóðleg verðlaun.
Andreas Schmidt kemur reglulega fram á tónlistarhátíðunum í Salzburg, Glyndebourne, Edinborg og Aix-en-Provence, á Berliner Festwochen og Wiener Festwochen, auk Wagner-hátíðarinnar í Bayreuth, þar sem hann söng Amfortas í Parsifal um fimm ár í röð og Beckmesser í Meistarasöngvrurunum um sjö ára skeið.
Andreas Schmidt er meðlimur í Freie Akademie der Künste í Hamburg og heiðursmeðlimur Richard-Wagner-félagsins í Düsseldorf. Árið 1997 veitti borgarstjórn Hamborgar honum titilinn „Kammersänger“ og síðan 2006 hefur hann gegnt stöðu prófessors við Carl Maria von Weber-tónlistarskólann í Dresden.