Birgitte Christensen, sópran, nam söng við norska tónlistarháskólann í Osló. Á árunum 1999-2003 var hún fastráðin við óperuna í Innsbruck. Í júní árið 2000 hlaut hún viðurkenningu Eberhard Waechter-verðlaunanna sem veitt eru í Vínaróperunni, fyrir hlutverk sitt í Partenope eftir Händel.
Birgitte Christensen hefur unnið með hljómsveitarstjórum á borð við René Jacobs, Rinaldo Alessandrini, Alessandro De Marchi, Alan Curtis, Lothar Zagrosek, Fabio Biondi, Manfred Honeck, Adam Fischer, Leopold Hager, Nicholas Kraemer, Stefan Klingele, Paolo Carignani, Diego Fasolis, Thomas Søndergård, Olaf Henzold, Steven Sloane, Francesco Corti, Jürgen Budday and Peter Schreier. Á undanförnum árum hefur hún komið fram í óperuhúsunum í Dresden, Stuttgart, Mannheim, auk þjóðaróperunnar í Berlín, Komische Oper í Berlín og norsku þjóðaróperunni.
Meðal óperuhlutverka hennar eru Donna Anna í Don Giovanni, Konstanze í Brottnáminu úr kvennabúrinu,Vitellia í La Clemenza di Tito, Violetta í La traviata, Liu í Turandot, Micaëla í Carmen, Desdemona í Otello og Fiorilla í Il Turco in Italia eftir Rossini, Helena í Draumi á Jónsmessunótt eftir Britten, Musetta í La Bohéme, Frú Fluth í Kátu konunum frá Windsor, Hanna Glawari í Kátu ekkjunni, Jenný í Mahagonny og Kúnígúnd í Birtíngi. Hún hefur einnig sungið þó nokkur hlutverk í barokkóperum, þar á meðal Kleópötru í Júlíusi Sesar, titilhlutverkið í Partenope, Bellezza í Il Trionfo del tempo e del disinganno og Iphis í Jephta eftir Händel, Edronica í Der Geduldige Socrates eftir Telemann og Gionata í Davíð eftir Conti.
Birgitte Christensen hefur komið fram í fjölda tónleikasala og á tónlistarhátíðum víða um Evrópu. Á verkefnaskrá hennar eru Matteusarpassía, Jóhannesarpassía, messa í h-moll, Jauchzet Gott in allen landen og jólaóratóría Bachs, messa í c-moll, Exultate Jubilati og Requiem Mozarts, Sköpunin eftir Haydn, Messías og Jephta eftir Händel, Stabat Mater og Petit Messe Solonelle eftir Rossini, Requiem Faurés, Carmina Burana eftir Orff, Elía og 2. sinfónía „Lobgesang“ eftir Mendelssohn, Brockes-passía Telemanns, Moses eftir Bruch, önnur og fjórða sinfónía Mahlers og Stabat Mater eftir Pergolesi. Síðastliðinn vetur söng Birgitte Christensen hlutver Micaëlu í Carmen og Elisabettu í Don Carlo við norsku þjóðaróperuna, Mozart-aríur með norsku útvarpshljómsveitinni undir stjórn Rinaldo Alessandrini, fjórðu sinfóníu Mahler’s, söngva fyrir sópran og hljómsveit eftir Charles Ives í Essen, og aríur eftir Bach og Mozart ásamt Mahler-kammersveitinni.
Í vetur hefur hún sungið titilhlutverkið í Krýningu Poppeu við norsku þjóðaróperuna, 9. sinfóníu Beethovens ásamt Oslóarfílharmóníunni, La Damoiselle Élue undir stjórn Umberto Benedetti Michelangeli, Missa Solemnis Beethovens undir stjórn Andrew Manze, Ein Deutsches Requiem eftir Brahms ásamt sinfóníuhljómsveitinni í Þrándheimi og Requiem Verdis hjá óperunni í Nordfjord. Framundan eru upptökur á tónlist eftir Sigismund Neukomm ásamt Kölnar-akademíunni undir stjórn Michael Willens.